Jæja þá er ég loksins orðin tvítug og hef ég ekki enn
farið í ríkið...tíhí fer um mánaðarmótin þegar maður getur keypt
eitthvað almennilegt
En já ég og Gunni héldum upp á afmælið mitt
og hans 20 okt en átti ég afmæli 21 okt og Gunni á afmæli á
miðvikudaginn 25 okt. Djöfull var gaman í partýinu...gerði líka
víst mjög vinsælan brauðrétt sem vissir aðilar hökkuðu í sig
Jáh... Þetta var alveg svakalegt partý og verð ég að segja að ég
hef sjaldan skemmt mér jafn mikið! Reyndar endaði djammið snemma
vegna bílveiki hjá vissum aðilum á leiðinni í bæinn
En það var
nú ok eyðilagði ekkert þótt aðilanum, Gunnari, finnst það. En hann
ætlar að bæta mér það upp, þótt hann engan veginn þarf þess, með að
bjóða mér og vinkonu minni á hótel eina nótt svo ég og vinkona mín
getum farið að djamma
En sú vinkona verður Berglind. Já ég fékk
svaka afmælisgjafir! Fékk þvottavél, leðurjakka og húfu frá
settinu, 5000 kall frá mömmu hans Gunna, eyrnalokka, hring, peysu
og kjól frá Gunna, glerkertastjaka frá Berglindi, blóm frá Mæju,
1000 kall frá Jónínu og Heiðu, Vodkaflösku frá Árna og Nönnu,
freyðivín frá Bjarka og svo held ég að það hafi ekki verið meira,
en alveg nóg 
Já svo er það óheppnin...það var víst keyrt á litlu mig á
bílnum. Já bakkað á mann fyrir utan nettó. Og til að toppa það þá
var ökuskírteinið mitt víst útrunnið...góður dagur já....
En já nenni ekki að skrifa meira
Adios Amigos....:*